
FSFH vinnur að þessu markmiðum með því að:
- halda uppi fræðslustarfsemi meðal foreldra heyrnardaufra barna, auka sem mest kynni þeirra á milli og samstarf í þágu heyrnardaufra. - láta sig varða starfsemi menntastofnana þeirra er heyrnardaufir stunda nám við, styðja þær og styrkja eftir föngum. - standa vörð um réttindi heyrnardaufra til náms, vals á námsbrautum og lífsstarfi. - stuðla að jafnrétti og betra aðgengi heyrnardaufra að upplýsingum og gera mögulega þátttöku þeirra í tómstunda- og menningarlífi. - greiða fyrir heyrnardaufu fólki á hvern þann hátt annan sem unnt er. - styrkja og greiða götu þeirra sem mennta sig í þágu heyrnardaufra.