Foreldrakvöld FSFH 22. janúar

FSFH heldur foreldrakvöld 22. janúar 2020 kl 20:00, í dönsku Stofunni á Geira smart, Hverfisgötu 30, 101 Rvk.

Félagið vill bjóða upp á vettvang fyrir foreldra að hittast, kynnast hvert öðru, kynnast félaginu og eiga notalega stund saman.

Á dagskrá eru nokkrar stuttar kynningar og svo er hugmyndin að foreldrar geti spjallað saman og átt huggulega kvöldstund.

-Kynning frá félagsráðgjafa um réttindi foreldra heyrnarskertra barna.
– Hvernig er að vera heyrnarskert barn? Margrét Gígja táknmálskennari situr fyrir svörum
– Kynning á ráðstefnu fyrir foreldra frá fulltrúa frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra (www.shh.is)
-Kynning frá FSFH um styrki sem standa foreldrum til boða,

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Vonandi sjáum við sem flesta foreldra

Giving Dinnr (1)

Aðalfundur FSFH 2019

Aðalfundur FSFH 2019 fór fram í gær, fimmtudaginn 5. desember. Fundargerð er komin inn á síðuna undir flipanum – Um okkur – fundargerðir.

Þar er einnig skýrsla stjórnar.